flugfréttir
FAA stöðvaði brottför þar sem merkingar vantaði á sætisólar
- Nokkrar sætisólar teknar úr annarri Boeing 777 og þeim flogið til Chicago
Vélin var var að undirbúa brottför frá Chicago til Delhi þegar strfsmenn frá FAA fór um borð í vélina
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) stöðvuðu brottför Boeing 777-300ER þotu frá indverska flugfélaginu Air India á O´Hare-flugvellinum í Chicago sl. föstudag eftir að við skyndskoðun um borð í vélinni kom í ljós að merkingar vantaði á margar sætisólar um borð.
Vélin var að undirbúa brottför til Delhi þegar starfsmenn frá FAA fóru um borð í vélina en um er að ræða merkingar á sætisólum
sem er skylt er að séu til staðar sem segja farþegum m.a. að vera með beltin spennt allan tímann auk þess sem fram kemur
hvernig eigi að festa beltin.
Þótt að ekki hafi verið um öryggisatriði að ræða sem varðar lofthæfi vélarinnar þá fékk vélin ekki að fara í loftið en Air India
hafði aðra Boeing 777 þotu í Bandaríkjunum sem var staðsett á Newark-flugvellinum í New York.
Dæmi um merkingar á sætisbeltum
Air India lét fjarlægja nokkur belti úr þeirri vél og var þeim flogið til Chicago og þeim komið fyrir í sætunum á vélinni þar svo
hún gæti haldið áfram för sinni til Delhi.
Vélin fór í loftið með 8 klukkustunda seinkun en Air India sendi frá sér tilkynningu þar sem kom fram að beltin sjálf
hafi verið í fullkomnu lagi en aðeins far þó farið að trosna upp merkingarnar á ólunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.