flugfréttir

Yfir 500.000 farþegar með Icelandair í júlí

- Mesti farþegafjöldi í sögu Icelandair

8. ágúst 2017

|

Frétt skrifuð kl. 22:54

„Vatnajökull“ á flugvellinum á Egilsstöðum í sumar

Aldrei hafa eins margir farþegar flogið með Icelandair í einum og sama mánuði eins og í júlímánuði sem leið.

Í júlí voru 540.000 farþegar sem flugu með Icelandair sem er mesti farþegafjöldi sem mælst hefur í einum mánuði í sögu félagsins og í fyrsta sinn sem félagið rýfur 500.000 farþegamúrinn.

Nákvæm tala sýnir að 540.475 farþegar flugu með Icelandair í júlí sem er 10% aukning frá því í júlí í fyrra þegar 489.163 farþegar flugu með félaginu.

Júlí er að öllu jöfnu annasamasti mánuður ársins hjá Icelandir og það sama á við flestöll flugfélög í Evrópu og víðsvegar um heiminn.

Sætanýtingin í júlí mældist 88,4% sem er 0.9 prósenta betri nýting m.a.v. júlí 2016 þegar sætanýtingin mældist 87,5 prósent.

Fækkun varð hinsvegar á farþegum með Air Iceland Connect en í júlímánuði voru 36.550 farþegar sem flugu með félaginu í innanlandsflugi og í flugi til Grænlands og annara áfangastaða en í fyrra flugu 36.892 farþegar með félaginu.

Fraktflutningar jukust um 41% frá því á síðasta ári, sem skýrist af aukningu í innflutningi til Íslands og flutningum um Ísland á milli Evrópu og N-Ameríku.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga