flugfréttir
Pappírsvinna seinkar því að Norwegian geti byrjað að nota þrjár 737 MAX þotur
- Mannekla hjá flugmálayfirvöldum vegna sumarfría
Boeing 737 MAX 8 þota Norwegian
Þrjár splunkunýjar Boeing 737 MAX 8 þotur fyrir Norwegian hafa sl. daga og vikur setið kyrrar á Gardermoen-flugvellinum í Osló og ekki geta hafið áætlunarflug vegna pappírsvinnu sem á eftir að afgreiða svo þær geti farið að fljúga með farþega.
Fyrstu vélarnar voru afhentar til Norwegian þann 18. júlí og sú þriðja var afhent þann 2. ágúst sl. en þær hafa ekki flogið neitt
eftir afhendingarflugið frá Boeing Field í Seattle.
Ástæðan er rakin til manneklu hjá viðeigandi flugmálastofnunum beggja megin Atlantshafsins sem sjá um að afgreiða
lofthæfi vélanna til að mega hefja farþegaflug en á þessum tíma eru margir í sumarfríi og þar á meðal þeir sem sjá um að
ganga frá þeim skjölum sem gefa grænt ljós fyrir farþegaflugi.
Þar af leiðandi hefur það ferli tekið lengri tíma en vonast var til en til stóð að nota vélarnar í flugi yfir Atlantshafið til austurstrandar Bandaríkjanna.
Norwegian hefur þurft að nota Boeing 737-800 þotur til flugsins fram að því milli Dublin og Belfast og Stewart-flugvallarins í New York
og þá hefur ein Boeing 737 MAX 8 þota flogið að undanförnu milli Edinborgar og Connecticut.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.