flugfréttir
Myndband: Klessti á kyrrstæðan bíl í misheppnuðu flugtaki á vegi
- Segja flugtakið hafa verið ólöglegt
Atvikið átti sér stað sl. mánudag í smábænum Chervlennaya í Téténíu í Kákasus-héraðinu í Rússlandi.
Ekki fór allt eins og til var ætlast er flugmaður á lítilli flugvél ætlaði sér að hefja sig á loft á vegi í smábænum Chervlennaya í Téténíu í Kákasus-héraðinu í Rússlandi.
Myndband náðist af atvikinu sem sýnir vélina í flugtaksbruni eftir veginum þar sem flugmaðurinn reynir að hefja sig á loft
en ekki vill betur til en að vélin klessir aftan á lítinn sendibíl sem var kyrrstæður á veginum.
Flugmaðurinn, Khashaev Hasambek, er er 44 ára, var einn í vélinni og slasaðist hann á andliti eftir að hafa skallað mælaborðið og var hann fluttur á sjúkrahús.
Atvikið átti sér stað sl. mánudag klukkan 16:30 að íslenskum tíma en bíllinn, sem var á veginum, var mannlaus.
Alsambek Nazirov, starfsmaður hjá samgönguyfirvöldum, segir að rannsókn slyssins sé í gangi og tekur hann fram að flugmaðurin hafði ekki leyfi fyrir að taka á loft á veginum auk þess sem honum yfirsást að gera nauðsynlega útreikninga á flugtaksvegalengdinni fyrir flugtak.
Flugvélin, sem var af gerðinni Spectr-Aero SP-30, er mikið skemmd á skrokk auk þess sem vængirnir eru illa farnir.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.