flugfréttir
EVA Air mun hætta með Boeing 747 eftir tvær vikur
EVA Air hefur aðeins eina Boeing 747 þotu eftir í flotanum í dag
Taívanska flugfélagið EVA Air hefur tilkynnt um síðasta farþegaflugið með júmbó-þotunni sem áætlað er þann 21. ágúst næstkomandi.
Seinasta júmbó-flug EVA Air verður flogið frá Taipei til Hong Kong en félagið hefur aðeins eina Boeing 747-400 eftir í flotanum
í dag.
EVA Air pantaði Boeing 747 þoturnar í október árið 1989 sem var hluti af pöntun í 26 þotur af gerðinni Boeing 747 og McDonnell
Douglas MD-11.
Félagið fékk fyrstu júmbó-þotuna árið 1992 og hafa þær því verið í flota félagsins í 25 ár en EVA Air hefur tekið Boeing 747 vélarnar
úr flotanum jafnt og þétt á meðan nýjar Boeing 777-300ER þotur hafa leyst þær af hólmi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.