flugfréttir
Fraktflug með enga flugmenn um borð árið 2025
- Flugfélög heimsins myndu spara sér 10 milljarða á dag án flugmanna
Ef spá USB Evidence Lab gengur upp þá munum við sjá fyrstu flugvélarnar í fraktflugi fljúga án flugmanna eftir 8 ár
Svo gæti farið að við færum að sjá fyrstu mannlausu flugvélarnar innan fárra ára en bandaríska fyrirtækið USB Evidence Lab spáir því að mannlaust fraktflug eigi eftir að verða að veruleika snemma á þriðja áratugnum.
Í nýlegri könnun þar sem um 8.000 manns voru spurðir varðandi flugferðir með mannlausum flugvélum kom í ljós að flestir
myndu ekki kæra sig um að fljúga með flugvél sem myndi fljúga sjálfkrafa en ekkert er því til fyrirstöðu að hægt verði að
hefja fraktflug með flugvélum sem hafa enga flugmenn við stjórnvölin.
USB Evidence Lab segir að fraktflugfélög gætu sparað sér umtalsverða fjármuni sem færi annars í launakostnað og þá myndi tölvustjórnun flugvéla spara flugfélögum um 0,5% í eldsneytiskostnað með nákvæmari flugleiðum sem yrðu útreiknaðar með
tölvubúnaði.
Yfir helmingur fólks myndi ekki kæra sig um að fljúga í flugvél sem hefur enga flugmenn við stjórnvölin
Í skýrslunni kemur fram að ef allt farþegaflug í heiminum yrði flogið með flugvélum án flugmanna þá gætu flugfélög heimsins
sparað sér um 30 milljarða evra sem samsvarar þrjúþúsund og 700 milljörðum króna.
Tæknin verður til staðar og tilbúin til notkunar árið 2025
USB Evidence Lab telur að sú tækni sem til þarf svo hægt verði að láta fraktflugvélar fljúga mannlausar gæti litið dagsins ljós
árið 2025.
Fram kemur að slík tækni gæti stuðlað að auknu flugöryggi þar sem skyndileg veikindi flugmanna og mannleg mistök yrðu
ekki lengur fyrir hendi ef flugvélum yrði stjórnað með háþróuðum tölvubúnaði en ekki kemur fram áhættan á tölvubilun sem vegur upp á móti.
Í skýrslu USB segir að farþegar í Bandaríkjunum gætu átt von á 11% lægri flugfargjöldum ef þeir myndu fljúga um borð í farþegaþotum
sem hefðu enga flugmenn.
Nýleg könnun sem gerð var í Bretlandi sýnir að 53% fólks segist ekki vilja stíga um borð í flugvél sem hefur enga flugmenn og reiðir
sig eingöngu á tölvustýrða stjórnun.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.