flugfréttir

Árekstur við dróna jafn alvarlegt og árekstur við aðra flugvél

- Flugmenn kalla á aðgerðir í kjölfar rannsóknar á árekstri flugvélar og dróna

12. ágúst 2017

|

Frétt skrifuð kl. 21:41

Reglulega á það sér stað að drónum er flogið í veg fyrir flugvélar og þá ofast í aðflugi að flugvöllum

Samtök evrópska flugmanna hafa krafist aðgerða í kjölfar tilrauna sem gerðar voru þar sem drónar voru látnir rekast á flugvél og þyrlu á flugi í þeim tilgangi að rannsaka afleiðingar við slíkan árekstur.

Hlutlaus rannsóknarhópur stóð á bakvið tilraunirnar sem fjármagnaðar voru af samtökunum European Cockpit Association (ECA) og samtökum breskra flugmanna.

Niðurstöðurnar út tilrauninni hafa leitt í ljós að dróni sem rekst á framrúðu á flugvél eða á mótor á þyrlu getur haft stórhættulegar afleiðingar sem getur leitt til flugslyss þrátt fyrir að um sé að ræða mjög lítinn dróna sem er á lítlum hraða.

Tilrauninrar leiddu einnig í ljós að árekstur við dróna er hættulegri en þegar flogið er á fugl og er því mælt með að drónanotendur fari eftir öllu að lögum og reglum er kemur að notkun slíkra tækja.

Johan Glantz, stjórnarformaður European Cockpit Association, segir að niðurstaða úr tilrauninni leiðir í ljós að árekstur við dróna geti verið jafn alvarlegur og árekstur við aðra flugvél.

ECA hvetur yfirvöld í Evrópu til að kynna sér niðurstöður skýrslunnar og grípa til varúðaraðgerða eins fljótt og hægt er til að gera drónanotendum grein fyrir hættunni.

Talið er að í hverri viku sé dróna flogið of nálægt flugvél og er þá ofast um að ræða flugvélar sem eru í aðflugi að flugvöllum en reglulega berast fregnir um atvik þar sem litlu munaði að dróni klessti á flugvél.

ECA fer fram á auglýsingaherferð og fræðslu varðandi málefnið og er mælt með því að eigendur dróna sæki viðeigandi námskeið áður en þeir byrja að fljúga drónum.

Þá er farið fram á að allir drónar verði skráðir svo auðvelt sé að hafa hendur í hári þeirra sem gerast brotlegir og að settur verði upp búnaður við flugvelli sem ná að greina dróna og vara við nálægð þeirra.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga