flugfréttir
Antonov stefnir á að afhenda 70 þotur á næstu fimm árum
Antonov An-178 þotan á flugi
Móðufélag Antonov flugvélaframleiðandans ætlar sér að afhenta að minnsta kosti 70 nýjar flugvélar á næstu fimm árum.
Ukroboronprom er móðurfélag Antonov en fyrirtækið á og rekur fyrirtæki sem bæði
starfa við framleiðslu á flugvélum, vopnum hergögnum auk ýmiss annars er við kemur
hernaði.
Ukroboronprom hefur gert ítarlega markaðsáætlun fyrir Antonov er kemur að sölu
á flugvélum til erlendra viðskiptavina.
Ukroboronprom hefur einnig birt markaðsspá sem sýnir að þörf sé fyrir um 900
meðalstórar fraktflugvélar í heiminum fyrir árið 2032 og framleiðir Antonov
sambærilegar vélar fyrir þann flokk.
Um er að ræða Antonov An-178 sem er tveggja hreyfla, hávængja herflutningavél sem flaug sitt fyrsta flug í maí árið 2015 en vélin var fyrst kynnt árið 2010.
Antonov ætlar sér að afhenda um tuttugu An-178 þotur á næstu fimm árum til viðskiptavina
í löndum fyrrum Sovíetríkjanna auk landa í Asíu og Afríku.
Þá segir Ukroboronprom að Antonov ætli sér að snúa aftur á markað farþegaþotna af fullum krafti með
Antonov An-148 og An-158 þotunum og Antonov An-140 vélinni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.