flugfréttir
Norwegian reynir að laða til sín flugmenn frá Air Berlin
- Atvinnuviðtöl munu fara fram í Berlín og í Dusseldorf
Stjórnklefi á Boeing 737 þotu
Norwegian mun halda atvinnuviðtöl í Berlín og í Dusseldorf en flugfélagið norska vonast til þess ráða til sín þá flugmenn sem hafa flogið fyrir Air Berlin sem lýsti yfir gjaldþroti í seinustu viku.
Skortur á flugmönnum er vandamál sem er farið að færast í vöxt um víðan heim og er algengt að flugfélög
reyni að ráða til sín flugmenn frá flugfélagi sem hefur hætt rekstri eða orðið gjaldþrota.
Þrátt fyrir að Air Berlin muni halda áfram rekstri með tilkomu fés frá þýska ríkinu þá telur Norwegian
að margir flugmenn muni leita á önnur mið eftir starfi hjá öðru flugfélagi.
„Norwegian/OSM Avaition Pilot Roadshow er opið fyrir alla flugmenn og fjölskyldur þeirra og þá sem vilja
vita meira um flugfélagið. Þar munu áhugasamir fá svör við öllum þeim spurningum sem þeir hafa varðandi
starf á Boeing 737 vélunum okkar“, segir í tilkynningu.
Norwegian segist bæði vera að leita að flugmönnum og flugstjórum og sérstaklega þeim sem hafa
tegundaráritun á Boeing 737 en að vísu hefur Air Berlin engar Boeing 737 lengur í flota sínum þar sem félagið
hefur eingöngu vélar frá Airbus í dag auk Bombardier Q400 véla.
Flugmenn, sem hafa flogið Boeing 737, verða að hafa 1.500 flugtíma að baki og þar af 500 tíma á Boeing 737-300 eða
Boeing 737-800 og þar af verða þeir að hafa 150 tímar skráða á seinustu 12 mánuðum.
Umsækjendur verða að hafa leyfi til þess að starfa inna evrópska efnahagssvæðisins og hafa enskukunnáttu
á fimmta stigi samkvæmt stöðlum ICAO.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.