flugfréttir
FAA gerir úttekt á flugöryggismálum í Nígeríu
- Örryggisstuðull landsins gæti uppfærst í Category 1
Frá Murtala Muhammed International flugvellinum í Lagos í Nígeríu
Starfsmenn frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) eru nú komnir til Nígeríu til að gera úttekt á öryggismálum í fluginu í landinu sem hefur ekki verið hátt skrifað að undanförnu er kemur að flugöryggi.
Ef í ljós kemur að framför hefur orðið á flugöryggismálum gæti það þýtt það að öryggisstuðull landins verður
hækkaður upp í Category 1 en með því geta nígerísk flugfélög byrjað að fljúga til Bandaríkjanna.
Fjögurra manna teymi frá FAA verður að störfum í höfuðborginni Lagos til 25. ágúst í þeim tilgangi
að athuga hvort öryggismálin uppfylli nú kröfur Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO).
Teymið mun athuga flugreglur landsins og eftirfylgni á þeim, fara yfir reglugerðir og starfshætti ýmissa
deilda er snýr að flugmálum, fara yfir vinnubrögð og þjálfun starfsmanna og gera úttekt á gæðamálum.
Þá verður farið yfir tækniþjónustu í öryggismálum, vottun og útgáfu á leyfum, eftirlitsmálum og farið yfir
öryggisþætti.
Nígería hefur verið það Afríkuríki þar sem flest flugslys hafa átt sér stað undanfarin ár með næstum eitt
flugslys á ári frá árinu 1945.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.