flugfréttir
Cathay Pacific pantar 32 Airbus A321neo þotur
Tölvugerð mynd af Airbus A321neo þotu í litum Cathay Dragon
Cathay Pacific hefur gert samning við Airbus um kaup á 32 þotum af gerðinni Airbus A321neo sem munu fara í flota dótturfélagsins, Cathay Dragon.
Cathay Dragon flýgur frá Hong Kong til 56 áfangastaða í Asíu og þar af til 28 borga á meginlandi Kína
en félagið hefur í dag fimmtán Airbus A320 þotur í flotanum, átta af gerðinni Airbus A321 og þá hefur
félagið 24 breiðþotur af gerðinni Airbus A330.
Samingurinn um pöntunina var undirritaður í gær í Toulouse en verðmæti kaupanna nemur 427 milljörðum króna.
Cathay Dragon mun fá fyrstu Airbus A321neo vélarnar afhentar árið 2020 og munu þær leysa einhverjar Airbus A320
vélarnar af hólmi á meðan aðrar munu bætast við í flotann.
Cathay Dragon var stofnað árið 1985 sem Dragonair en félagið heitir í dag Hong Kong Dragon Airlines en
flýgur undir merkinu Cathay Dragon.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.