flugfréttir
Ryanair hefur áhuga á að kaupa Air Berlin á einu bretti
- Ósáttir við forgangsrétt Lufthansa að samningaviðræðum
Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair
Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, segist hafa áhuga á að kaupa Air Berlin eins og það leggur sig á einu bretti ef það er möguleiki ásamt eigum og flugflota.
O´Leary segir að nauðsynlegt verði þó að fá ítarlegur upplýsingar um fjárhagsstöðu
Air Berlin, yfirlit yfir hversu mikið fé félagið hafi verið að tapa og hver er ástæðan fyrir
því að félagið hafi verið að tapa svona miklu fé á markaði þar sem Ryanair hefur verið
að græða.
„Það eru ekki mörg flugfélög sem hafa haft 25% af markaðnum í Þýskalandi sem hafa
verið sett á sölu“, sagði O´Leary í nýlegu viðtali.
Lufthansa hefur fyrsta viðræðurétt um kaup á Air Berlin og hefur ríkisstjórn Þýskalands
lýst yfir stuðningi við mögulegt tilboð Lufthansa í félagið en O´Leary segir
að ef Lufthansa eignast Air Berlin muni það skapa einokun á þýska markaðnum og víðar
í Evrópu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.