flugfréttir
WOW air mun fljúga til St. Louis, Cincinnati, Cleveland og Detroit
Allar borgirnar fjórar eiga það sameiginlegt að vera í miðríkjum Bandaríkjanna
WOW air hefur bætt við fjórum nýjum áfangastöðum í leiðarkerfi sitt Bandaríkjunum sem félagið mun byrja að fljúga til á næsta ári.
Áfangastaðirnir eiga það allir sameiginlegt að vera allir í miðríkjum Bandaríkjanna en borgirnar
eru St. Louis, Cleveland, Cincinnati og Detroit.
Ekkert íslenskt flugfélag hefur áður flogið til þessara borga en Icelandair tilkynnti Cleveland sem nýjan áfangastað
í fyrradag eða degi á undan WOW air.
„Það er með stolti sem við kynnum til leiks fjóra nýja áfangastaði í Bandaríkjunum, hver öðrum meira spennandi. Þessi mikla aukning á umsvifum okkar er í takt við áður gefin loforð um að gera sem flestum kleift að ferðast yfir hafið á sem allra bestu kjörum,“ segir Skúli Mogensen eigandi og forstjóri WOW air.
Af áfangastöðunum fjórum þá mun flug til Detroit hefjast fyrst eða í apríl næsta vor, þann 3. maí mun
flugið til Cleveland hefjast og tveimur vikum síðar verður fyrsta flugið flogið til St. Louis en flug til Cincinnati
mun einnig hefjast í maí.
Flogið verður með Airbus A321 þotum og verður flogið allt að 4 sinnum í viku fram á haustið 2018.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.