flugfréttir
EASA varar við ofhitnun í vökvakerfi á Airbus A350
Airbus A350 tilraunarþota
Evrópsk flugmálayfirvöld (EASA) hafa sent frá sér neyðartilmæli vegna lofthæfisvottunar á Airbus A350 vegna mögulegrar ofhitnunar í vökvakerfi fyrir eldsneytisdælu vélanna sem getur ollið eldsvoða.
Talsmaður Airbus segir að allar Airbus A350 þoturnar í heiminum séu í umferð þrátt fyrir tilmælin
sem tóku í gildi í dag en nokkrum sinnum hefur komið upp ofhitnun í kælibúnaði fyrir vökvakerfið
en þegar slíkt gerist getur hitastigið í vökvakerfinu rokið upp á skömmum tíma.
Ef ekki er brugðist rétt við í tæka tíð getur það skapað eldhættu þar sem eldsneytistankar vélarinnar eru
staðsettir rétt hjá kælikerfinu.
Ekki kemur fram hvaða Airbus A350 flugvél átti hlut að máli er ofhitnun varð í vökvakerfi og vill Airbus
ekki tjá sig hvort um var að ræða tilraunaflugvél eða flugvél hjá flugfélagi.
Flugfélögum er bent á að gefa vandamálinu gaum og bregðast við með tilheyrandi fyrirmælum en ekki
hefur verið farið fram á að grípa til sérstakra aðgerða.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.