flugfréttir

Tvö hús eyðilögðust er Ilyushin Il-76 hætti við lendingu

- Fimm ára stúlka í húsinu lést og fjórir slösuðust

24. ágúst 2017

|

Frétt skrifuð kl. 16:00

Ilyushin Il-76 fraktþota frá Trans Avia

Lítil stúlka lét lífið og nokkrir særðust er fraktflugvél af gerðinni Ilyushin Il-76 rakst á hús í aðflugi að borginni Juba í Suður-Súdan sl. þriðjudag.

Vélin, sem var frá Trans Avia Export Cargo Airlines, var að fljúga með matvæli á vegum matarhjálpar Sameinuðu þjóðanna og var í lending á flugvellinum í Juba í miklu óveðri og slæmu skyggni.

Þegar vélin kom niður í gegnum skýin rakst hún meðal annars í tré í aðfluginu og fór með hjólastellið gegnum þak á einbýlishús við flugvöllinn með þeim afleiðingum að húsið gjöreyðilagðist.

Fimm ára gömul stúlka í húsinu lét lífið og þá slasaðist einn drengur, önnur stúlka og tvær konur í kjölfar atviksins.

Frá flugvellinum í Juba í Suður-Súdan

Vélin hafði hætt við lendingu og höfðu flugmennirnir sett fullt afl á hreyflanna til að fara aftur í loftið er þeir hættu við lendinguna en við það olli knýrinn frá hreyflunum skemmdir á öðru húsi er vélin hækkaði flugið.

Ákveðið var að halda til alþjóðaflugvallarins í Entebbe í Úganda með laskaðan hjólabúnað en hjólastell féll saman við lendingu þar sem járnabrak af þakinu var fast í hjólabúnaðinum.

Sjónarvottur á jörðu niðri sagði að vélin hafi engan vegin verið í réttri stefnu inn á brautina og stefndi hún beint á Hotel Rainbow hótelið. Vélin hafði því næst farið í fráflug („go around“) en rekist með hjólastelið í hús áður en hún náði að hefja sig á loft að nýju og valdið skemmtun á öðru húsi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga