flugfréttir

Lufthansa gerir tilboð í hluta af rekstri Air Berlin

26. ágúst 2017

|

Frétt skrifuð kl. 11:53

Airbus A330 þota Air Berlin í flugtaki á flugvellinum í Los Angeles

Lufthansa hefur tilkynnt að félagið hafi formlega sent inn kauptilboð í Air Berlin en félagið sækist eftir hlut í félaginu og er ekki um tilboð í allan hluta þess að ræða.

Stjórnendur Lufthansa áttu fund með nefnd kröfuhafa þar sem félagið gerði tilboð í yfirtöku á Air Berlin Group að hluta til með skilmálum sem var samþykkt af gjaldþrotastjórn.

Fundurinn, sem fór fram í gær, snérist að mestu um samningaviðræður varðandi stjórnsýslu félagsins og fyrirkomulag en rekstur Air Berlin mun halda áfram í óbreyttri mynd á meðan samningaviðræðurnar fara fram.

Skiptanefndin tók fram að mjög varfærnislega verði farið í skipti á rekstri og eignum Air Berlin en það gæti verið eitthvað sem Lufthansa mun eiga erfitt með að sætta sig við þar sem samningaaðilar frá félaginu vilja helst að hlutirnir muni ganga hratt fyrir sig.

Á sama tíma segir Brigitte Zypries, efnahagsráðherra Þýskalands, að samningar vegna sölu Air Berlin verði að ganga hratt fyrir sig þar sem horfurnar líta ekki beint vel út til lengri tíma litið.

„Ég vona að salan muni ganga fljótt fyrir sig því horfurnar líta ekki vel út eins og er. Ég meina hver er að bóka flug núna með Air Berlin?, ef það er þá hægt yfir höfuð“, segir Zypries.

Zypries furðar sig einnig á 18 milljarða króna fjárveitingu til Air Berlin frá þýska ríkinu og vonast til að það fé verði greitt til baka.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga