flugfréttir
Hlé á flugprófunum með MRJ90 vegna bilunar í hreyfli
- Eldur kom upp í hreyfli á flugi
Prófanir hafa ekki farið fram í vikunni frá því bilunin varð
Hlé hefur verið gert á tilraunum með japönsku Mitsubishi MRJ90 þotuna eftir að bilun kom upp í Pratt & Whitney PW1000G hreyfli vélarinnar í vikunni á meðan flugprófanir stóðu yfir.
Ein af tilraunarþotunum fjórum var í flugprófunum skammt undan ströndum Oregon sl. mánudag þegar eldur kom upp í hreyfli vélarinnar og drap hann á sér í kjölfarið.
Flugmenn vélarinnar voru í æfingarloftrými þegar atvikið átti sér stað og var vélinni snúið við og henni lent á flugvellinum í Portland.
Vélin sem um ræðir er FTV-2 sem er önnur MRJ90 tilraunarþotan en flugprófanir hafa farið fram að mestu leyti í Bandaríkjunum.
Prófanir hafa ekki farið fram í vikunni frá því bilunin varð og hefur verið gert tímabundið hlé á þeim á meðan rannsakað
er hvað olli biluninni.
Hreyflaframleiðandinn Pratt & Whitney hefur átt í töluverðu basli með PW1000G hreyfilinn sem er framleiddur í mismunandi útgáfum fyrir þotur á borð við CSeries, Embraer E-Jets E2 og Irkut MC21 þotuna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.