flugfréttir
Aeroflot íhugar sex Boeing 777-300ER til viðbótar
Boeing 777-300ER þota Aeroflot
Aeroflot Group ætlar að leggja inn pöntun í sex nýjar Boeing 777-300ER þotur og verður tillaga þess efnis lögð fyrir stjórn félagsins á næsta stjórnarfundi.
Ekki kemur fram hvaða dótturfélag Aeroflot Group mun fá Boeing 777-300ER þoturnar
en Aeroflot hefur nú þegar sextán þotur af þessari gerð í flota sínum og þá hefur
Rossiya Airlines eina Boeing 777-200 þotu og fimm Boeing 777-300.
Engar frekar upplýsingar hafa verið gefnar varðandi fyrirætlanir með umrædda
pöntun en á seinasta fundi með fjárfestum Aeroflot kom fram að félagið hefði gott af því að fá
fleiri Boeing 777-300ER þotur í flotann.
Aeroflot á og rekur meðal annars flugfélögin Aurora, Pobeda og Rossiya Airlines en
flugfloti félaganna fjögurra telur tæpar 300 flugvélar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.