flugfréttir

Hi Fly í Portúgal á von á tveimur A380 risaþotum

- Mögulega fyrstu risaþoturnar frá Singapore Airlines

28. ágúst 2017

|

Frétt skrifuð kl. 07:33

Hi Fly mun fá fyrri Airbus A380 þotuna afhenta vorið 2018

Portúgalska leiguflugfélagið Hi Fly á von á tveimur Airbus A380 risaþotum sem fyrirtækið mun fá afhentar í vor.

Ekki kemur fram hvaðan Airbus A380 risaþoturnar koma en talið er að um sé að ræða fyrstu risaþoturnar sem Singapore Airlines sé að skila og eru þetta því fyrstu A380 þoturnar sem koma á notaðan markað.

Hi Fly hefur nær eingöngu haft breiðþotur í flota sínum sem félagið hefur leigt út til annarra flugfélaga en fyrirtækið portúgalska hefur meðal annars komið íslenskum flugfélög til bjargar og orðið þeim úti um flugvélar til afnota tímabundið.

Hi Fly vill ekki gefa upp hvaðan risaþoturnar tvær koma en sú fyrri verður afhent félaginu vorið 2018.

Airbus A340 þota Hi Fly

Singapore Airliens hefur tekið fyrstu risaþotuna úr umferð sem er 9V-SKA en sú þota hefur ekki flogið síðan í júní og hefur verið í geymslu á Changi-flugvellinum í Singapore.

Mjög erfiðlega hefur gengið fyrir Airbus að finna nýja viðskiptavini fyrir Airbus A380 ein seinasta pöntun í risaþotuna kom frá japanska flugfélaginu ANA (All Nippon Airways) í janúar árið 2016.

Paulo Mirpuri, framkvæmdarstjóri Hi Fly, segir að Airbus A380 þoturnar sem félagið á von á komi með sætum fyrir 560 farþega og verði þær notaðar í flugi milli áfangastaða þar sem mjög mikil eftirspurn er eftir flugsætum.

Hi Fly hefur í dag 13 þotur í flota sínum, eina Airbus A321, fimm A330, sex A340-300 og tvær Airbu A340-500 þotur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga