flugfréttir

Framleiðsla á Pilatus PC-6 Porter mun líða undir lok

- Hefur verið framleidd sleitulaust frá sjötta áratugnum

28. ágúst 2017

|

Frétt skrifuð kl. 11:53

Pilatus PC-6 Porter flugvél

Flugvélaframleiðandinn Pilatus tilkynnti í dag að ákveðið hefur verið að hætta framleiðslu á Pilatus PC-6 Porter flugvélinni.

PC-6 flugvélin var sú flugvél sem kom nafninu Pilatus á kortið um allan heim en vélin flaug fyrst árið 1959 en vélin var bæði framleidd með bulluhreyfli og með þotuskrúfuhreyfli.

Pilatus PC-6 hefur verið framleidd í 58 ár og kom aldrei til þess að hlé var gert á framleiðslunni en fáar flugvélar hafa verið framleiddar í eins langan tíma í flugsögunni.

Síðasta eintakið af PC-6 flugvélinni verður smíðað árið 2019 en boðið verður upp á þjónustu og sölu á varahlutum fyrir vélina næstu 20 árin eftir að framleiðslan hættir.

PC-6 Porter flaug sitt fyrsta flug árið 1959

Pilatus hefur framleitt yfir 500 eintök af PC-6 Porter vélinni og hefur vélin alltaf verið framleidd í Stans í Sviss.

Pilatus segir að vegna þess hversu gömul hönnunin er orðin þá sé ógjörningur að halda áfram að betrumbæta vélina þar sem staðlar í fluginu hafa breyst það mikið og sé því tímabært að hætta að framleiða vélina núna 60 árum síðar.

Þeir starfsmenn, sem hafa starfað við framleiðslu á Pilatus PC-6 vélinni verða færðir til og munu þeir fá störf við samsetningu á öðrum tegundum flugvéla.

Pilatus mun þrátt fyrir þetta taka við nýjum pöntunum í PC-6 vélina fram á mitt árið 2018 en fjöldi flugvéla sem hægt er að panta er takmarkaður.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga