flugfréttir

Niki Lauda vill kaupa Niki flugfélagið sitt aftur

- Óttast einokun ef Lufhansa fær að kaupa félagið sem hann stofnaði

28. ágúst 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:27

Niki Lauda segir að einokun muni skapast í fluginu í Austurríki ef Lufhansa fær að kaupa Niki flugfélagið

Milljarðamæringurinn og fyrrverandi Formúla 1 kappaksturskappinn, Andreas Nikolaus Lauda, sem betur er þekktur undir nafninu Niki Lauda, hefur lýst yfir áhuga á að kaupa flugfélagið Niki aftur og koma því í sína eigu á ný.

Niki er dótturfélag hiðs gjaldþrota flugfélags Air Berlin en Niki Lauda stofnaði félagið árið 2003 er hann keypti upp rekstur og eignir Aero Lloyd sem varð gjaldþrota í október árið 2003.

Niki fór í samstarf með Air Berlin ári síðar, árið 2004, og árið 2011 sameinaðist félagið rekstri Air Berlin en hélt þó rekstrinum áfram undir sínu eigin merki til ársins 2012 en þá voru vélarnar málaðar í litum Air Berlin.

Niki Lauda segir í viðtali við austurríska fjölmiðilinn Kronen-Zeitung að hann hafi skrifað bréf til gjaldþrotanefndar Air Berlin og lýst yfir áhuga á að kaupa flyNiki aftur.

Svo virðist sem að gagnkvæmur áhugi sé fyrir kaupunum því Lauda fékk svar frá gjaldþrotastjórninni og á hann bókaðan fund á þriðjudag vegna málsins.

Lauda er þó ekki sá eini sem hefur áhuga á Niki því Lufthansa hefur einnig gert tilkall í austurríska hlutann í Air Berlin.

Lauda segir að hann hafi áhyggjur af því að einokunarstaða eigi eftir að koma upp í fluginu í Austurríki ef Lufthansa mun taka yfir rekstur Niki.

„Ef það gerist þá verður engin samkeppni lengur í Austurríki“, segir Lauda.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga