flugfréttir
Cargolux bætir við tveimur áfangastöðum í Afríku
Boeing 747-8F fraktþota Cargolux
Cargolux hefur aukið markaðshlutdeild sína í Afríku með tveimur nýjum áfangastöðum sem félagið mun hefja áætlunarflug til með frakt.
Þann 15. september mun Cargolux byrja að fljúga til Lubumbashi í Kongó og þann
3. október mun félagið fljúga sitt fyrsta flug til Douala í Kamerún.
Flogið verður til Lubumbashi frá Lúxemborg á hverju föstudagskvöldi og áfram til Jóhannesarborgar, Nairobi og til baka til Stansted-flugvallarins áður en lent
er aftur í Lúxemborg.
Flogið verður til Douala frá Lúxemborg á miðvikudögum gegnum Bamako í Malí og
er flogið til baka daginn eftir.
Lubumbashi er önnur stærsta borgin í Kongó á eftir höfuðborginni Kinshasa en borgin
er mikil iðnaðarborg þar sem framleiðsla fer fram á 3% af öllum þeim kopar sem til er í
heiminum.
Douala og Lumbumbashi bætast við þá 33 áfangastaði sem Cargolux flýgur til
í Afríku.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.