flugfréttir

Blandaður flugfloti möguleiki fyrir Alaska Airlines

28. ágúst 2017

|

Frétt skrifuð kl. 23:38

Farþegaþotur Alaska Airlines og Virgin America

Alaska Airlines íhugar nú þann kost að hafa blandaðan flugflota af Airbus og Boeing vélum í flota sínum.

Alaska Airlines keypti Virgin America árið 2016 en félagið, sem hefur eingöngu Boeing 737 þotur í flota sínum, yfirtók Virgin America sem hefur eingöngu Airbus-þotur.

Brad Tilden, framkvæmdarstjóri Alaska Airlines, hafði fyrr á þessu ári lýst því yfir að sennilega myndi félagið halda sig við eina tegund af farþegaþotum áfram en í dag hefur Tilden greint frá því að sennilega séu aðstæður fyrir því að hafa Airbus-vélar einnig í flota Alaska Airlines.

Engin flugvél í flota Virgin America hefur verið máluð í litum Alaska Airlines þar sem til stendur að reka félagið áfram undir merkjum Virgin America að minnsta kosti til ársins 2022.

„Við munum reka félögin undir sitthvoru merkinu áfram um nokkurt skeið og hefur ekki verið nein ákvörðun tekin um hvort að til standi að halda sig við eina flugvélategund eftir það“, segir Tilden.

Leiga á Airbus-vélunum í flota Virgin America mun renna út eftir árið 2022 en stjórn Alaska Airlines mun eiga fund með Airbus og Boeing á næsta ári þar sem flotastefna félaganna verður rædd.

„Félagið er enn stolt „Boeing-flugfélag“ þrátt fyrir að við getum ekki lengur sagt að við séum eingöngu með Boeing-þotur“, segir Tilden.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga