flugfréttir

South African á barmi þess að halda úti flugrekstri

- Skera niður áfangastaði og fækka vélum í flotanum

29. ágúst 2017

|

Frétt skrifuð kl. 06:46

Farþegaþotur South African á London Heathrow

South African Airways hefur ákveðið að hefja viðamikinn niðurskurð í rekstri félagsins með því að fella niður flugleiðir, fækka flugvélum í flotanum og fækka flugferðum.

Suður-Afríska flugfélagið segir að þessar aðgerðir séu liður í því að halda félaginu gangandi áfram en það stendur frammi fyrir miklum rekstarerfiðleikum.

Arðbærasta flugleiðin í leiðarkerfi félagsins er flugið milli Jóhannesarborgar og Höfðaborgar en flugferðum verður fækkað um þriðjung milli borganna tveggja.

Þá stendur til að fellar niður allt flug til og frá Port Elizabeth og East London og einnig fella niður flugferðir frá Suður-Afríku til fjölda áfangastaða til annarra afrískra nágrannaland.

Mikið hefur gengið á innan stjórnar South African Airways þar sem miklar ósættir hafa verið í garð nokkurra yfirstjórnenda sem taldir eru hafa slæm áhrif fyrir félagið og þá hefur Musa Zwane, framkvæmdarstjóri félagsins, verið lagður inn á spítala.

Nokkrir heimildarmenn innan félagsins hafa tjáð sig um stöðuna og segja hana mjög slæma og sé verið að gera allt til að halda lífi í rekstrinum.

Rekstur South African er sagður ganga mjög erfiðlega um þessar mundir

Félagið skuldar nokkur lán sem tekin hafa verið en frestur til að greiða þau til baka hefur tvisvar verið framlengdur en seinasta umsókn til að fresta gjalddaga var hafnað.

Burt séð frá skuldum South African Airways þá er rekstarféið að verða uppurið og nær félagið ekki að hala inn nægilega miklum tekjum til að greiða skuldir sem halda áfam að hrannast upp.

South African flýgur tvisvar á dag frá Jóhannesarborg til Heathrow-flugvallarins í Lundúnum en til stendur að skera það flug niður með því að fljúga eitt flug á dag til London.

Þá stendur til að hætta að fljúga til áfangastaða á við Brazzeville í Kongó, Lilongwe í Malaví, Kigali í Rúanda og til Libreville í Gabon.

South African Airways hefur um 50 flugvélar í flota sínum en níu vélar eru í eigu félagsins en hinar eru teknar á leigu og er kostnaður við leigu á þeim vélum um 28 milljarðar króna á ári.

Félagið hefur farið þess á leit við ríkisstjórn Suður-Afríku um að fá 102 milljarða króna lán til að halda rekstri félagsins gangandi en aðeins er einn mánuður liðinn frá því að félagið fékk 17 milljarða króna fé inn í reksturinn.

Einhverjir fréttamiðlar greina frá því að South African Airways sé á barmi gjaldþrots en Malusi Gigaba, fjármálaráðherra Suður-Afríku, segir að ákvörðun um frekari lán til félagsins verði tekin í október.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga