flugfréttir
Spirit Airlines fær fyrstu A320 þotuna sem smíðuð er í Ameríku
Fyrsta Airbus A320 þotan sem smíðuð er í Bandaríkjunum í litum Spirit Airlines
Airbus hefur afhent fyrstu Airbus A320 þotuna sem smíðuð er á bandarískri grund en það er bandaríska lágfargjaldafélagið Spirit Airlines sem hefur tekið við fyrstu A320 þotunni sem smíðuð var í verksmiðjum Airbus í Mobile í Alabama.
Vélin er sú þrítugasta og sjöunda sem smíðuð er í Alabama en frá því verksmiðjan var tekin í notkun
í júlí árið 2015 þá hafa eingöngu Airbus A321 þotur verið framleiddar í Mobile.
Spirit Airlines er því núna komið með 106 þotur en allar vélarnar eru frá Airbus og samanstendur
flugfloti félagsins af 31 véla af gerðinni Airbus A319, 48 Airbus A320 þotum, fjórum Airbus A320neo
vélum og 21 af gerðinni Airbus A321.
Airbus A320 er nú framleidd í þremur heimsálfum, í Norður-Ameríku, Evrópu og í Asíu
en Airbus hefur einnig verksmiðju í Tianjin í Kína.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.