flugfréttir
Sprengja frá seinni heimstyrjöldinni raskaði flugi
- Loka þurfti Tegel-flugvelli í 3 klukkustundir í gærkvöldi
Frá Tegel-flugvellinum í Berlín
Töluverð röskun varð á flugi um Tegel-flugvöllinn í gærkvöldi eftir að sprengja fannst í nágrenni hans sem er talin vera frá seinni heimstyrjöldinni.
Sprengjan uppgötvaðist á svæði þar sem jarðvinna fer fram þar sem yfirgefin BMW-verksmiðja stendur í dag en ákveðið
var að virkja öryggissvæði í 350 metra radíus frá sprengjunni.
Þrjár klukkustundir tók að aftengja sprengjuna og fengu engar flugvélar að lenda á meðan en þess í stað var flugumferðinni
beint til nýja Brandenburg-flugvallarins þótt að sá flugvöllur hafi enn ekki verið tekinn í notkun.
Farþegar gátu samt ekki farið frá borði á Brandenburg-flugvellinum þar sem engir rútur og engir stigabílar voru tiltækir til að koma
þeim frá borði. Á sama tíma voru yfir 20 flugvélar sem lentu á Schönenfeld-flugvellinum en þar fengu farþegar að fara frá borði.
Um 11-leytið í gærkvöldi opnaði Tegel-flugvöllurinn aftur þegar búið var að aftengja sprengjuna og fóru flugvélarnar á Brandenburg-vellinum þá aftur í loftið og flugu mjög stutt flug yfir til Tegel.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.