flugfréttir
Flughermir fyrir ARJ21 þotuna fær Level D vottun
ARJ21 flughermirinn
Fyrsti flughermirinn fyrir ARJ21 þotuna hefur fengið D-vottun frá kínverskum flugmálayfirvöld en þetta er fyrsti flughermirinn sem framleiddur er sérstaklega fyrir kínverska farþegaþotu sem fær Level D vottun.
Level D flughermir er sá hermir sem er fullútbúinn hreyfanlegur hermir með raunverulegstu eftirlíkingu af stjórnklefa sem til er þar sem
enginn munur er á flughermi og stjórnklefa á þeirri flugvél sem hann líkir eftir.
Level D flughermir skal hreyfast með öllum sex snúningsmöguleikunum með a.m.k. 150 gráðu ásýnd fyrir hvern flugmann með myndvörpun sem býður upp á fjarlægðardýptarfókus, raunveruleg umhverfishljóð ásamt fleiri hreyfingaratriðum.
Með þessu munu flugmenn geta byrjað að fljúga ARJ21 þotunni um leið og þeir hafa
lokið þjálfun í ARJ21 flughermum svipað og tíðkast í þjálfun á Level D flughermum
fyrir aðrar þotur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.