flugfréttir

Yfir 9.600 flugferðum aflýst vegna fellibylsins Harvey

- Röskun á flugi teygir sig fram á næstu helgi

30. ágúst 2017

|

Frétt skrifuð kl. 18:36

Yfir 9.600 flugferðum hefur verið aflýst um flugvellina í Houston frá því um helgi

Enn er ekki búið að opna flugvellina tvo sem þjóna Houston í Texas eftir að fellibylurinn Harvey gekk þar á land um helgina.

Alls er búið að aflýsa 9.600 flugferðum vegna fellibylsins og er enn verið að fella niður flug um flugvelli í Texas og Lousiana og mun röskunin teygja sig fram á næsta laugardag.

Af þeim 9.600 flugferðum sem búið er að fella niður eru 8.700 flugferðir um Houston Hobby og George Bush Intercontinental flugvöllinn (IAH) en þá er ekki tekið með inn í reikningin þær flugferðir sem voru felldar niður í New Orleans og með fram strönd Louisiana og Missisippi.

Þrátt fyrir gríðarlegan fjölda flugferða, sem hafa verið felldur niður, þá hefur Harvey ekki enn slegið metið en fleiri flugferðum var aflýst er fellibylurinn Sandy gekk yfir norðurausturhluta Bandaríkjanna árið 2012.

Ekki er enn vitað hvenær flug getur hafist að nýju um flugvellina tvo í Houston en á vefsíðu bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) kemur fram að stefnt er að því að koma flugumferð á að nýju á morgun.

Frá Hobby-flugvellinum í Houston

Hraðbrautir til og frá flugvöllunum tveimur eru loksins orðnar færar eftir að flóð flæddi yfir þær og stórt svæði Houston-borgar.

George Bush flugvöllurinn er fimmti stærsti flugvöllur Bandaríkjanna og næststærsta bækistöð United Airlines á eftir Newark-flugvellinum en William P. Hobby flugvöllur er ein stærsta bækistöðin fyrir Southwest Airlines sem flýgur þaðan til fleiri tugi áfangastað um öll Bandaríkin.

United Airlines og Southwest Airlines hafa staðið í ströngu við að endurbóka farþega og endurskipuleggja leiðarkerfi sitt til að undirbúa áframhaldandi flugsamgöngur um leið og flugvellirnir tveir í Houston opna að nýju.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga