flugfréttir

Diamond DA20 kennsluflugvél nauðlenti á engi í Ölpunum

- Flugnemi og flugkennari sluppu án meiðsla

30. ágúst 2017

|

Frétt skrifuð kl. 20:57

Diamond DA20 kennsluflugvél frá European Aviation Academy

Kennsluflugvél af gerðinni Diamond DA-20 nauðlenti í dag á engi í dal í austurrísku Ölpunum eftir að vélarbilun kom upp í mótor.

Vélin, sem er frá Evrópsku flugakademíunni (European Aviation Academy) fór í loftið frá Salzburg og var förinni heitið inn eftir Ölpunum til bæjarins Zell am See.

Um borð var 19 ára flugnemi sem var við stjórnvölin og 44 ára gamall flugkennari en þegar þeir voru hálfnaðir inn dalinn sem skilur að austurrísku Alpanna komu upp gangtruflanir.

Flugkennarinn tók við stjórninni og reyndi að endurræsa mótorinn en eftir tvær árangurslausar tilraunir var eina ráðið að koma auga á lendingarstað og fara yfir neyðarviðbrögð.

Flugvélin með yfirbreiðslu á akrinum eftir nauðlendinguna

Flugkennarinn tók fram að þar sem Diamond DA-20 vélarnar hafa óvenju góða svifeiginleika þá hafi það gefið þeim góðan undirbúningstíma.

Vélin nauðlenti á akri við bæinn Zell am See og komst flugneminn og kennarinn frá borði að sjálfdáðum án meiðsla en flugkennarinn er með 3.500 flugtíma að baki.

Í tilkynningu segir að DA-20 vélarnar, sem framleiddar eru af Diamond Aircraft í Austurríki, séu mjög áreiðanlegar en þær eru meðal vinsælustu kennsluvéla hjá flugskólum í dag um víðan heim.

Hjólastell brotnaði af vélinni í lendingunni

„Nauðlendingar og viðbrögð við þeim er eitthvað sem við kennum ávalt þótt sjaldan komi til þess að nemandi þurfi að lenda í slíkum aðstæðum“, segir Thomas Edlinger, framkvæmdarstjóri hjá European Aviation Academy.

„Þrátt fyrir að kennsluvélarnar gangist undir reglubundna skoðun og ítarlegt viðhald til að uppfylla ströngustu skilyrði þá er bilun sem þessi eitthvað sem getur alltaf komið upp á“, segir Edlinger.

Kennsluvélin verður á næstu dögum ferjuð til Salzburg þar sem EAA hefur höfuðstöðvar en hjólastell vélarinnar brotnaði af í lendingunni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga