flugfréttir

Jet2.com ætlar að ráða 180 nýja flugmenn

- Ætla einnig að ráða til sín 900 flugfreyjur og flugþjóna

31. ágúst 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:35

Jet2.com leitar einnig að 900 flugfreyjum og flugliðum til starfa

Breska flugfélagið Jet2.com ætlar sér að ráða á næstunni yfir 1.700 nýja starfsmenn og þar af fjölda flugmanna, flugliða auk flugvallarstarfsfólks.

Jet2.com mun halda atvinnuviðtalsfundi á mörgum stöðum víða um Bretlandi á næstu vikum í tengslum við aukin umsvif félagsins sumarið 2018.

Félagið leitar meðal annars að 180 flugmönnum, 900 flugfreyjum og flugþjónum og 700 starsfmönnum á flugvöllum.

Jet2.com, sem er þriðja stærsta lágfargjaldafélag Bretlands, hefur verið útnefnt sem besta flugfélag Bretlands og besta breska lágfargjaldafélagið.

Jet2.com á von á því að fá 18 Boeing 737-800 þotur afhentar á næstunni til ársins 2019 og eru ráðningarnar hluti af auknum umsvifum félagsins.

Félagið leitar bæði af flugmönnum og flugstjórum sem hafa tegundaráritun á Boeing 737 og Boeing 757 og einnig að flugmönnum án tegundaráritunar.

Byrjunarlaun flugmanns hjá Jet2.com eru um 605.000 krónur á mánuði á meðan flugstjóri byrjar með 1.062.000 krónur á mánuði.

Flugmenn munu verða staðsettir á bækistöðvum félagsins í Alicante, Belfast, Birmingham, Edinborg, East Midlands, Glasgow, Manchester, Newcastle og London Stansted.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga