flugfréttir
Cathay Pacific mun hefja flug til Köben
- Munu einnig hefja flug frá Hong Kong til Brussel og Dublin
Airbus A350-900 þota Cathay Pacific
Danir munu næsta vor fá beinar flugsamgöngur til Hong Kong en kínverska flugfélagið Cathay Pacific hefur tilkynnt að félagið muni hefja flug frá Hong Kong til Kaupmannahafnar.
Fyrsta flugið frá Hong Kong til Köben verður flogið þann 2. maí 2018 og verður flogið a.m.k. þrisvar í viku
með Airbus A350 þotum.
Peter Krogsgaard, markaðsstjóri Copenhagen Airport, segir að Hong Kong hafi lengi verið einn vinsælasti áfangastaður
Dana af þeim stöðum sem ekki hefur verið hægt að fljúga beint til en alls voru 27.000 farþegar sem flugu frá Köben
til Hong Kong árið 2016 sem fór í gegnum aðra flugvelli til að taka tengiflug.
Þá ætlar Cathay Pacific einnig að hefja flug frá Hong Kong til Brussel og til Dublin en fyrsta flugið til Brussel
verður flogið þann 25. maí 2018 og þann 2. júní mun flugið til Dublinar hefjast.
Til Dublin og Brussel verður einnig flogið með Airbus A350 þotum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.