flugfréttir
Tilkynnt verður um opnun Brandenburg á þessu ári
- Framkvæmdum og lagfæringum mun ljúka í ágúst 2018
Frá Brandenburg-flugvellinum í Berlín
Möguleiki er á því að senn fari loksins að líða að því að nýi Brandenburg-flugvöllurinn í Berlín verði opnaður en það mun þó sennilega ekki nást árið 2018.
Nú hefur verið greint frá því að sennilega muni framkvæmdum og lagfæringum á flugvellinum ljúka í ágúst árið 2018
en þar með er ekki sagt að hann muni verða tilbúinn til notkunnar.
Í kjölfarið þarf að framkvæma fjölmargar prófanir og tilraunir eftir að lagfæringum lýkur og þá þurfa
flugmálayfirvöld að taka út fjölmörg atriði á vellinum.
Engelbert Lütke Daldrup, framkvæmdarstjóri Brandenburg-flugvallarins, vill ekki gefa upp hvenær séð er fram á að taka flugvöllinn í notkun en tók fram að stjórnin mun tilkynna opnunardagsetninguna á þessu ári.
Hátt í 10 sinnum hefur opnun Brandenburg-flugvallarins verið frestað en upphaflega stóð til að taka hann í notkun árið 2010.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.