flugfréttir
Flugdólgur dæmdur til að greiða Hawaiian 10 milljónir króna
- Þarf að greiða þann kostnað sem fór í að snúa vélinni við til Honolulu
Airbus A330-200 þota Hawaiian Airlines
Karlmaður í New Jersey, sem gerðist flugdólgur er hann flaug með Hawaiian Airlines í fyrra, hefur verið dæmdur til að greiða félaginu yfir 10 milljónir króna í bætur vegna hátterni síns.
James August flaug með Hawaiian Airlines frá Honolulu til New York þann 29. nóvember 2016 en
vegna slæmrar hegðunar sökum áfengisdrykkju neyddist flugstjórinn til að snúa vélinni við.
James hafði í hótunum við eiginkonu sína, börn og aðra farþega og lagði hendur á flugfreyju
um borð en vandamálið byrjaði er hann hóf að láta ófriðlega fyrir brottför frá Honolulu.
Dómari dæmdi August í júní í sumar í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi en á mánudag
var hann dæmdur til að greiða Hawaiian Airlines þann kostnað sem fór í að snúa vélinni við aftur til Honolulu.
Kostnaðurinn sundurliðast í eldsneyti, kostnað við starfsmenn á flugvelli, nýja máltíð um borð, lendingargjöld og þá þurfti að kalla út nýja áhöfn.
Flugdólgurinn James August
Alls þarf August að greiða 10.220.898 krónur til Hawaiian Airines en sektin nær þó ekki yfir kostnað upp á 5,1 milljón króna sem félagið þurfti að leggja út fyrir matarmiðum fyrir farþegana á meðan þeir biðu eftir því að vélin gæti hafið sig á loft að nýju.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.