flugfréttir
Condor hefur áhuga á að kaupa Air Berlin
Ralf Teckentrup, framkvæmdarstjóri Condor
Þýska flugfélagið Condor hefur lýst yfir áhuga á að kaupa Air Berlin og taka yfir allan rekstur félagsins sem varð gjaldþrota í ágúst.
Samkvæmt fréttum þá eru stjórarmeðlimir Condor að fara yfir bókhald Air Berlin og undirbúa tilboð í félagið en á sama
tíma þá hefur Ryanair dregið sig til baka og er hætt við að gera tilboð í félagið.
Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, hefur lýst yfir mikilli óánægju með hvernig
staðið hefur verið að uppboðsferlinu þar sem Ryanair hefur ekki verið boðið til viðræðna og
segir O´Leary að þetta sé gert til þess að sjá til þess að Lufthansa fái að kaupa Air Berlin.
Condor hefur einnig áhuga á að taka yfir rekstur á sautján Airbus A321 þotum úr flota
Niki sem félagið segir að muni henta vel í rekstur Condor.
Upphaflega stóð til að ákvörðun um sölu á Air Berlin yrði tekin þann 15. september en núna er talið að það muni
frestast um sex daga þar sem fjárfestar og hluthafar í félaginu munu koma saman þann 21. september til að fara yfir þau tilboð sem hafa borist.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.