flugfréttir
Slasaðist á höfði eftir að hafa gengið á loftskrúfu flugvélar
Slysið átti sér stað sl. laugardag á Newark-flugvellinum í Bandaríkjunum
Alvarlegt slys átti sér stað á Newark-flugvellinum í Bandaríkjunum er flugvallarstarfsmaður slasaðist á höfði er hann varð fyrir blöðum loftskrúfu á mótor flugvélar sem var í gangi.
Hinn slasaði, sem er kona á sextugsaldri, er starfsmaður hjá United Airlines en hún var flutt á sjúkrahús
og kemur fram að hún hafi hlotið alvarlega áverka.
Flugvélin er í eigu CommutAir sem flýgur fyrir United Express og er vélin af Dash-gerð frá Bombardier. Ekki er tilgreind nákvæm flugvélategund en CommutAir hefur bæði Q300 og Q200 vélar í flota sínum.
Slysið átti sér stað sl. laugardag á viðhaldssvæði flugvallarins en frekari upplýsingar hafa ekki verið birtar.
Rannsókn slyssins fer nú fram en ekki varð nein röskun á flugi á Newark-flugvelli vegna þessa.
Aðrir bandarískir fréttamiðlar greina frá því að konan er þungt haldin en hún starfar við þrif.
Sjúkrabílar á vettvangi á Newark-flugvelli sl. laugardagsmorgun
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.