flugfréttir

SAS ætlar að blása nýju lífi í flugvöllinn í Árósum

- Ætla að auka flugumferð um völlinn um 50 prósent

4. september 2017

|

Frétt skrifuð kl. 09:10

SAS ætlar bæði að fjölga flugferðum til Árósa frá Kaupmannahöfn og bæta við áfangastöðum í Evrópu

Nýju lífi verður blásið í rekstur flugvallarins í Árósum í kjölfar stórs samnings sem flugvöllurinn og Scandinavian Airlines (SAS) hafa gert sín á milli.

SAS ætlar sér að fjölga flugferðum til Evrópu frá Árósum umtalsvert sem mun auka flugumferðina um völlinn um 50 prósent.

„Árósar hafa notið mikils áhuga meðal erlendra fyrirtækja auk þess sem ferðamönnum hefur fjölgað mikið sem þýðir að við sjáum mörg tækifæri framundan“, segir Lars Sandahl Sørensen, fjármálastjóri SAS.

Með samningnum mun SAS fjölga daglegum flugferðum milli Kaupmannahafnar og Árósa auk þess sem félagið mun bæta við áfangastöðum frá borginni til Evrópu en tilkynnt verður um nýja áfangastaði í október.

Þá hefur verið mikil eftirspurn eftir flugi frá Árósum til Oslóar, Stokkhólms og Kaupmannahafnar meðal þeirra farþega sem eru að ferðast í viðskiptaerindum.

Fimm flugfélög fljúga til Árósa í dag en þau eru British Airways (Sun-Air), Czech Airlines, Danish Air Transport (DAT), Ryanair og SAS.

SAS flýgur í dag aðeins frá Árósum til Kaupmannahafnar auk þess sem félagið flýgur til Malaga á Spáni yfir sumartímann.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga