flugfréttir
Eiga von á mörgum pöntunum á næstunni í Irkut MC-21 þotuna
- Undirbúa seinni helming flugprófanna
Irkut MC-21 þotan í jómfrúarfluginu
Rússar eiga von á því að pöntunum í Irkut MC-21 farþegaþotuna eigi eftir að fjölga á næstunni en fyrstu prófunum með þotuna er nú lokið og mun næsta lota prófanna hefjast á næstunni.
Rússneskir fjölmiðlar segja að nokkrir samningar hafi verið undirritaðir bæði við rússnesk
og erlend flugfélög.
Irkut segist vera komið með pantanir í 366 þotur, langflest félögin eru frá Rússlandi og fyrrverandi
löndum Sovíetríkjanna en spáð er að 28% af pöntunum eigi eftir að koma frá Asíu og Eyjaálfu.
Fyrsta Irkut MC-21 þotan verður afhent til Aeroflot fyrir ársloks árisns 2018 en fjöldaframleiðsla vélarinnar
mun hefjast á næsta ári.
MC-21 þotan verður framleidd í þremur útgáfum, MC-21-400 mun hafa sæti fyrir 240 farþega, MC-21-300
mun taka 160 farþega og MC-21-200 mun taka frá 130 til 165 farþega.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.