flugfréttir
Klara Íris Vigfúsdóttir ráðinn forstöðumaður hjá Icelandair
Klara Íris Vigfúsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður flugfreyja og flugþjóna hjá Icelandair
Klara Íris Vigfúsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður flugfreyja og flugþjóna hjá Icelandair.
Starfið er á flugrekstrarsviði Icelandair og felst meðal annars í að stýra starfsmannamálum flugfreyja og -þjóna, öryggismálum um borð auk framkvæmdar á allri þjónustu um borð í flugvélum félagsins.
Klara sem er með B.sc. í viðskiptafræði starfaði í sumarafleysingum í flugdeild Icelandair og sem flugfreyja. Hún starfaði síðar á markaðssviði Landsbankans á árunum 2006-2011 og sem framkvæmdastjóri ÍMARK á árunum 2013-2015.
Hún starfaði þá við flugrekstur sem aðstoðarmaður forstjóra Iceland Express og framkvæmdastjóri Express ferða og síðar sem á árunum 2011-2013. Þá var Klara forstöðumaður hjá Úrval / Útsýn árin 2015-2017.
Klara er gift Guðmundi Inga Haukssyni verkfræðingi og eiga þau þrjá syni, en Klara á jafnframt tvö stjúpbörn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.