flugfréttir
Boeing vinnur fullnaðarsigur í langri deilu gegn Airbus
- WTO kemst að því að Boeing hefur ekki þegið ólögmæta styrki
Boeing 777-300ER í samsetningu í Everett
Boeing hefur unnið sigur úr bítum í lagadeilu við Airbus sem staðið yfir í töluvert langan tíma þar sem Evrópusambandið hefur, fyrir hönd Airbus, sakað Washington-ríki um að hafa styrkt Boeing með ólögmætum hætti.
Alþjóðaviðskiptastofnunin (WTO) vísaði kröfu Evrópusambandsins frá með dómsúrskurði sínum
sl. mánudag og snéri því við ákvörðun lægri stjórnar stofnunarinnar sem komst að þeirri niðurstöðu
fyrr í sumar að Boeing hefði þegið ólögmæta styrki frá Washington-ríki sem stangast á við samkeppnislög.
Með þeirri niðurstöðu var einnig farið fram á að Bandaríkjastjórn myndi stöðva allar slíka styrki til Boeing
en ríkisstjórnin áfrýjaði þeim úrskurði í desember síðastliðnum.
Ákvörðun Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar sl. mánudag er endanleg ákvörðun og er hún byggð á þeirri niðurstöðu
að engar af þeim greiðslum, sem Boeing hefur þegið frá Washington-ríki, eru ólöglegar.
Bæði Boeing og Airbus hafa sl. 13 ár eldað grátt silfur saman og verið inn á borði hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni vegna gruns um að þiggja ólögmæta styrki og hefur Airbus lengi sakað Boeing um slíkt.
Airbus fór inn á borð WTO árið 2004 eftir að í ljós kom að flugvélaframleiðandinn evrópski hafði fengið styrki frá Evrópusambandinu vegna þróunnar og framleiðslu á risaþotunni Airbus A380.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.