flugfréttir

130 flugmenn hjá Air India hafa neitað áfengisprófi

- Líkur á að flugmálayfirvöld muni láta leysa þá og 430 flugliða af störfum

5. september 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:19

Farþegaþotur Air India á flugvellinum í Bombay

Miklar líkur eru á því að um 132 flugmenn og 430 flugfreyjur og flugþjónar hjá Air India verði leyst frá störfum á næstunni fyrir það að hafa ítrekað neitað að gangast undir áfengispróf fyrir og eftir flug að undanförnu.

Flugmálayfirvöld á Indlandi segja að þessir starfsmenn hafi reglulega komið sér undan því að gangast undir prófið sem fer fram áður en þau ganga um borð í flug en einnig hafa áfengispróf verið tekin af áhöfnum eftir flug.

Samkvæmt reglugerðum indverskra flugmálayfirvalda verða flugmenn og flugliðar að taka áfengispróf þegar verið er að taka slík próf fyrir brottför og mega áhafnir ekki neyta áfengis 12 klukkustundum fyrir brottför.

Flugfreyjur Air India

„Þetta er mjög alvarlegt brot á öryggisreglum í fluginu og það verður tekið hart á þessu í garð þessara áhafnarmeðlima“, segir í yfirlýsingu frá indverskum flugmálayfirvöldum sem taka það fram að sá sem neitar að gangast undir áfengispróf sé þar með talinn sekur um að hafa neytt áfengis.

Ef til þess kemur að 132 flugmenn og 430 flugliðar verði leyst af störfum mun það koma til með að hafa miklar afleiðingar fyrir flugrekstur Air India er snýr að minni farþegaþotum félagsins.

Um 4 vikna sviptingu er að ræða fyrir þá sem falla á áfengisprófi en 224 flugmenn og flugliðar féllu á áfengisprófi á Indlandi árið 2016 og 202 árið 2015.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga