flugfréttir
Fyrsta Airbus A350 þotan í litum Malaysian Airlines
Fyrstu A350 þotunni í litum Malaysian Airlines var ýtt út úr málningarsal í gær
Fyrsta Airbus A350 þotan fyrir Malaysian Airlines hefur verið máluð í litum félagsins.
Vélin er sú fyrsta af þeim sex A350-900 þotum sem Malaysian pantaði árið 2015 og verður hún afhent
félaginu í desember.
Malaysian Airlines ætlar að skipta út risaþotunni Airbus A380 á flugleiðinni frá Kuala Lumpur til
London Heathrow fyrir Airbus A350 á næsta ári.
Airbus hefur í dag afhent yfir 100 Airbus A350 þotur til sextán flugfélaga en Singapore Airlines
er komið með flestar vélarnar en félagið hefur fengið 16 eintök afhent og þá hefur Cathay Pacific
fengið fimmtán vélar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.