flugfréttir
Ryanair ræður ekki lengur við tvær töskur í handfarangri
- Veldur fjölda seinkanna - Breyta reglunni aftur niður í einn handfarangur
Boeing 737-800 þota Ryanair
Ryanair segir að seinkunum á flugi hafi færst í aukanna eftir að flugfélagið byrjaði að leyfa farþegum að taka með sér tvær töskur í handfarangri árið 2014.
Flugfélagið segir að það ráði varla við þann fjölda af handfarangri sem farþegar taka með sér um borð
og sé varla nægt pláss í handfarangursgeymslum sem veldur því að of mikill tími fer í að láta
farþega koma sér fyrir í flugvélinni fyrir brottför.
Ryanair hefur því ákveðið að breyta reglum um handfarangur aftur og þann 1. nóvember munu farþegar
geta greitt 5 pundum til að fá að taka tvær töskur með sér í handfarangri.
Aðrir farþegar, sem ætla um borð
með tvær litlar töskur, munu þurfa að afhenda þá stærri við brottfararhlið og verður hún sett í fraktina þeim að kostnaðarlausu.
Ryanair segir að þær seinkanir, sem koma upp vegna of mikils magn af handfarangri, hafi seinkað
viðsnúningstíma sem valdi keðjuverkandi seinkun í leiðarkerfinu.
Ryanair segir að ekki sé um gróðaleið að ræða og ætli félagið að koma til móts við farþega með því
að lækka verð á innrituðum farangri úr 25 pundum niður í fimmtán sterlingspund og auka
hámarksþyngd á innrituðum farangri úr 15 kílóum upp í 20 kg.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.