flugfréttir

Boeing hækkar spá sína fyrir þörf á nýjum flugvélum í Kína

- Um 20% af öllum farþegalugvélum í heiminum verða í Kína árið 2036

6. september 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:01

Frá Hongqiao-flugvellinum í Shanghai

Boeing spái enn meiri þörf fyrir nýjum flugvélum í Kína og hefur flugvélaframleiðandinn uppfært spánna fyrir næstu 20 árin.

Í fyrra gerði Boeing ráð fyrir því að þörf væri fyrir 6.810 nýjar farþegaþotur í Kína til ársins 2036 en núna telur Boeing að Kína þurfi á 7.240 flugvélum á að halda til næstu 20 ára.

Þetta samsvarar 18 prósent af öllum þeim fjölda flugvéla sem flugfélög í öllum heiminum þurfa á að halda á næstu tveimur áratugum.

Um 74% af þessum 7.240 flugvélum munu verða minni farþegaþotur með einum gangi sem margar hverjar munu fljúga innanlandsflug í Kína auk flugs til annarra landa í Asíu.

Boeing spáir því að Kína þurfi 1.670 nýjar breiðþotur sem sundurliðast í 940 þotur sem taka 200 til 300 farþega og 550 þotur sem taka yfir 300 farþega. Þá er séð fram á þörf fyrir 180 stórar fraktþotur.

„Gert er ráð fyrir því að flugfloti kínverskra flugfélaga muni stækka mun örar og mun hraðar en meðaltalið er í heiminum. Næstum 20 prósent af öllum flugvélum í heiminum verða staðsettar í Kína“, segir Randy Tinseth, forstjóri yfir farþegaþotudeild Boeing.

Á heimsvísu þá gerir Boeing ráð fyrir því að þörf sé fyrir 41.030 nýjar flugvélar á næstu 20 árum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga