flugfréttir
WOW air mun fljúga til Dallas
- Flogið þrisvar í viku frá og með 23. maí 2018
Flugið til Dallas mun hefjast í maí næsta vor
WOW air mun hefja beint flug til Dallas í Texas frá og með vorinu 2018.
Flugið til Dallas mun hefjast þann 23. maí næstkomandi og verður flogið á Dallas/Fort Worth flugvöllinn
sem er 3. stærsti flugvöllur í heimi er kemur að fjölda flugtaka og lendinga.
„Í kjölfar mikillar velgengi vestanhafs bætum við Dallas við ört stækkandi leiðarkerfi okkar. Það er frábært að geta boðið enn fleirum upp á þann valkost að fljúga ódýrt yfir hafið og ég veit að Dallas er staður sem mun falla vel í kramið hjá Íslendingum enda var Ewing fjölskyldan tíður gestur á heimilum margra hér á árum áður,“ segir Skúli Mogensen stofnandi og forstjóri WOW air.
Flogið verður á Dallas/Fort Worth flugvöllinn
Dallas er fyrir margra hluta sakir merkilegur staður að heimsækja. Við Dealey Plaza er safn til heiðurs John F. Kennedy,
The Sixth Floor Museum, en safnið er staðsett á efstu tveimur hæðum þar sem Lee Harvey Oswald á að hafa hleypt af skotum og ráðið forsetann af dögum.
Þá er Dallas líka mikil íþrótta- og menningarborg. Stórliðin Dallas Cowboys, Dallas Mavericks, Texas Rangers og Dallas Stars eiga þar öll bækistöðvar.
Þá segir í tilkinningu frá WOW air að enginn má láta það framhjá sér fara að heimsækja Southfork-býlið þar sem Ewing-fjölskyldan úr sjónvarpsþáttunum Dallas hafði aðsetur.
Flogið verður með Airbus A330 vél og er brottför frá Keflavík kl 21:30 en flogið verður á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.