flugfréttir

Miklar skemmdir á St. Maarten flugvelli eftir fellibylinn Irmu

- Hluti þaks flugstöðvarinnar rifnaði og flugvélar skemmdust

6. september 2017

|

Frétt skrifuð kl. 18:19

St. Maarten flugvöllur er frægur fyrir aðflugið yfir ströndina en einhver bið gæti orðið á því að flug muni hefjast aftur um völlinn

Princess Juliana flugvöllurinn í Karíbahafi er mjög illa farinn eftir fellibylinn Irmu sem reið yfir St. Maarten eyjuna snemma í morgun.

Í morgun mældist vindhraðinn á flugvellinum 140 hnútar og fór vindurinn upp í 160 hnúta í mestu hviðunum sem samsvarar tvöföldu fárviðri samkvæmt gömlu vindstigum Veðurstofunnar.

Flugvöllurinn á St. Maarten er hvað þekktastur fyrir sitt fræga aðflug þar sem flugvélar koma inn til lendingar lágt yfir sólþyrstum baðgestum á Maho Beach ströndinni.

Þak flugstöðvarbyggingarinnar er mjög illa farið en næstum allar þakklæðningarnar á flugstöðinni tættust af í veðurhamnum og hluti af því fauk niður á flughlaðið.

Eins og sjá má er þak flugstöðvarinnar illa farið

Töluvert mikið vatn flæddi inn í flugstöðina og þá fuku landgöngubrýr um koll á flughlaðinu og skemmdust.

Flugbraut vallarins er þakin sandi, grjóti og braki en flugvellinum var lokað fyrir umferð í gærkvöld þegar fór að hvessa.

Stjórn flugvallarins hefur ekki enn gefið frá sér yfirlýsingu varðandi skemmdirnar né hvenær séð er fram á að flugumferð muni hefjast að nýju.

Flugskýli á flugvellinum hrundi til grunna og flugvélar eyðilögðust

Þá eyðilagðist vefmyndavélin á Maho Beach ströndinni sem hefur sent beint út á Netinu með hljóði og hafa margir flugáhugamenn í heiminum fylgst með strandlífinu og flugvélunum á vellinum.

Miðja fellibylsins Irmu er núna rétt norður af Bresku Jómfrúareyjum og stefnir hann vestur til Púertó Ríkó á 24 km/klst hraða en þaðan er spáð að hann muni þræða sig norðvestur eftir Kúbu um helgina og skella á Miami á sunnudag.

Fleiri myndir:



















  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga