flugfréttir
Reynt að tryggja að Boeing 797 verði framleidd í Washington
- Skortur á hæfum starfsmönnum gæti þýtt að smíði vélarinnar flytjist annað
Tölvugerð mynd af hugmyndaflugvél merk „Boeing 797“/ Myndin tengist ekki Boeing
Jay Inslee, ríkisstjóri í Washington, vinnur nú að því að tryggja það að fyrirhuguð framleiðsla á nýrri farþegaþotu, sem mun koma til með að heita Boeing 797, muni fara fram í Washington-ríki en ekki í öðru ríki Bandaríkjanna.
Inslee átti viðræður við ýmsa yfirmenn fyrirtækja í framleiðslu á flugvélum á ráðstefnu í flugiðnaðinum
sem fram fór í Lynnwood á dögunum þar sem hann tók fram að Washington biði upp á bestu
aðstöðuna og staðsetninguna fyrir smíði Boeing 797.
Inslee hefur enn ekki rætt formlega við yfirmenn Boeing en á sama tíma tók Ray Conner, fyrrverandi yfirmaður
farþegaþotudeildar Boeing, við Titan of Industry verðlaununum fyrir ferill sinn hjá Boeing.
Jay Inslee, ríkisstjóri Washington-ríkis
Conner, sem heimsótti Ísland nýlega, tók fram að verkfræðingar og flugvirkjar í Washington
fer fækkandi í stéttinni þar sem margir eru að nálgast starfslokaaldur og sé því nauðsynlegt að tryggja að
framleiðsla á flugvélum fari fram þar sem nægur mannskapur sé til staðar á sama tíma og bjart
er framundan í fluginu.
Matt Yerbic, forstjóri hjá Aviation Technical Services, tók í sama streng og sagði að það skorti starfsfólk
í flugiðnaðinum í Washington sem hefur nægilega þjálfun - „Ég myndi ráða 200 starfsmenn strax í dag
með þá reynslu sem til þarf ef þeir væri fáanlegir“.
Washington-ríki hefur áður gripið til aðgerða til að tryggja að Boeing haldi sig við Washington sem framleiðslustað
og þá meðal annars með því að fresta greiðslu á sköttum á meðan Boeing 777X er í þróun en Boeing mun spara
sér 915 milljarða króna í skatt til ársins 2040 með samkomulagi sem gert var.
„Núna er ég að einblína á að gera Washington besta staðinn fyrir framleiðslu á Boeing 797 til að viðhalda
þeirri staðreynd að Seattle er besti staðurinn til að smíða flugvélar“, segir Inslee.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.