flugfréttir
Stærsta sumar í sögu Keflavíkurflugvallar
- Yfir 1 milljón farþega í júlí og aftur í ágúst
Boeing 757 þota Icelandair í lendingu á Keflavíkurflugvelli í sumar
Aldrei áður hafa eins margir farþegar farið um Keflavíkurflugvöll á einu sumri og því sem nú er senn á enda.
Ef litið er á tímabilið frá janúar til ágúst þá voru 5.954.761 farþegi sem fór um Keflavíkurflugvöll sem er 32,4% aukning frá sama tímabili í fyrra og er því um algjört met
að ræða.
Fjöldinn er í takt við farþegaspá Isavia sem gefin var út í lok árs 2016 en þá var því spáð að 5.921.693 farþegar færu um völlinn á fyrstu 8 mánuðum ársins sem er
einungis 0,54% færri en raunin varð.
Gert er ráð fyrir að heildarfjöldi farþega verði á bilinu 8,7 - 8,8 milljónir árið 2017 sem yrði þá um 28% aukning frá árinu 2016. Skipting farþega er í samræmi við spár
en um þriðjungur farþega flugvallarins eru tengifarþegar en aðrir farþegar skiptast í komu og brottfararfarþega.
Eins og undanfarin ár var sumarið annasamasti tíminn en sumarið (júní – ágúst) var það stærsta á flugvellinum hingað til.
Starfsemin á flugvellinum gekk mjög vel í sumar
Í fyrsta sinn í sögunni fóru yfir ein milljón farþega í gegnum flugvöllinn á einum mánuði og gerðist það í júlí og aftur í ágúst. Stærsti dagur sumarsins var 6. ágúst
þegar 40.147 farþegar fóru í gegnum flugvöllinn en það er 19% fleiri farþegar en á stærsta deginum í fyrra sumar.
Í fyrsta sinn í sögu Keflavíkurflugvallar náði farþegafjöldinn einni milljón á mánuði sem átti sér stað í júlí og aftur í ágúst
Heilt yfir gekk umferð um flugvöllinn mjög vel í sumar og hafa þær afkastaaukandi framkvæmdir sem ráðist hefur verið í síðastliðin misseri skilað árangri. Biðtími í öryggisleit
á flugvellinum var undir 5 mínútum hjá 88% farþega í ágústmánuði þrátt fyrir sögulegan fjölda farþega.
Flug oftar á réttum tíma
Þá voru flug almennt oftar á réttum tíma miðað við sama tímabil í fyrra. Í sumar ákvað Isavia í samráði við Icelandair, Primera og Wow air að bjóða uppá innritun frá 12 á miðnætti fyrir þá sem áttu bókað morgunflug. Nokkur fjöldi farþega nýtti sér þessa auknu þjónustu sem skilaði dreifðara álagi í innritun og öryggisleit.
Vetraráætlun Keflavíkurflugvallar er orðin opinber, en á tímabilinu nóvember til mars 2018 er gert ráð fyrir um 830 þúsund auka sætum í boði frá sama tímabili í fyrra, eða um 27% aukning. Heildar framboð flugsæta verður um 3,8 milljónir í vetur en var um 3 milljónir síðastliðinn vetur.
Alls verða það 15 flugfélög sem fljúga til og frá Keflavíkurflugvelli í vetur til 69 áfangastaða.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.