flugfréttir
Embraer stefnir á að framleiða farþegaþotur í Kína
Frá verksmiðju Embraer í Brasilíu
Brasilíski flugvélaframleiðandinn Embraer segir að til greina komi að opna flugvélaverksmiðju í Kína fyrir farþegaþotur en framleiðandinn lokaði í fyrra verksmiðju í landinu þar sem einkaþotur voru framleiddar.
Paulo Cesar de Souza e Silva, framkvæmdarstjóri Embraer, segir að miklar sviptingar séu á markaðnum
og sé því grundvöllur fyrir því að framleiða E-þoturnar einnig í Kína.
Það yrði því í fyrsta sinn sem Embraer farþegaþotur verði framleiddar utan Brasilíu en framleiðandinn
sér fram á að þörf sé fyrir yfir 1.000 farþegaþotur á næstu 20 árum í Kína í þeim stærðarflokki sem Embraer
framleiðir.
Embraer mun þó fara í samkeppni við Airbus og Boeing í framleiðslu á farþegaþotum fyrir Kína en einnig
mun framleiðandinn mæta samkeppni frá hinni kínversku ARJ21 þotu sem COMAC framleiðir.
Um 330 flugvélar frá Embraer eru í umferð í sautján Asíulöndum og á Kyrrahafssvæðinu. Embraer
hafði framleitt einkaþotur í Harbin í Kína en sú framleiðsla gekk ekki vel þar sem lítill áhugi var
frá stjórnvöldum fyrir framleiðslunni auk þess sem eftirspurn eftir einkaþotum tók niðursveiflu fyrir nokkrum árum en er að aukast að nýju.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.