flugfréttir

97 ára samstarf KLM og Fokker senn á enda

- Hætta með síðustu Fokker-flugvélina í október

13. september 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:31

Fokker 70 þota KLM Cityhopper

97 ára langt samstarf KLM Royal Dutch Airlines og Fokker er senn á enda en í lok október mun flugfélagið hollenska hætta með Fokker 70 þoturnar.

Seinasta flug KLM með Fokker 70 verður flogið þann 28. október næstkomandi frá London sem er engin tilviljun því fyrsta farþegaflug KLM var flogið þann 17. maí árið 1920 frá Croydon-flugvellinum í London til Amsterdam.

Flugstjóri í því flugi var Jerry Shaw og var það flug flogið með eins hreyfils tvíþekju af gerðinni Airco DH16 sem hönnuð var af Geoffrey de Havilland.

Skömmu síðar tók KLM í notkun tvær Fokker-flugvélar af gerðinni Fokker F.II og var fyrsta flugið með þeim flogið frá Amsterdam til London þann 17. september 1920.

H-NABD, fyrsta Fokker-vél KLM

Fokker 70 þoturnar hafa verið í flota KLM Cityhopper frá árinu 1995 en félagið hefur verið að skipta þeim út fyrir Embraer 190 þotur að undanförnu.

KLM hefur haft 13 tegundur af Fokker-vélum í flota sínum á þessum 97 árum, Fokker F.II, F.III, F.VII, F.VIII, F.IX, F.XII, F.XVIII, F.XX, F.XXII, F.XXXVI, Fokker 50, Fokker 100 og Fokker 70.

Framleiðsla á Fokker-vélunum var hætt árið 1996 eftir að að fyrirtækið varð gjaldþrota.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga