flugfréttir

Stefna á 14 Dreamliner-þotur á mánuði árið 2019

- Ætla að framleiða eina Dreamliner-þotu á 2 daga fresti

14. september 2017

|

Frétt skrifuð kl. 11:57

Nýjar Dreamliner-þotur

Boeing ætlar sér að slá met í framleiðsluhraða á breiðþotum með því að hækka afkastagetuna í smíði á Dreamliner-þotunni upp á 14 eintök á mánuði árið 2019.

Þetta tilkynnti Dennis Muilenburg, yfirmaður farþegaþotudeildar Boeing, sem segist sannfærður um að það muni takast að framleiða 14 Boeing 787 þotur á mánuði þar sem eftirspurnin er næg og staða hjá birgjum góð sem eru tilbúnir í að auka framleiðslu sína.

Í dag framleiðir Boeing tólf Dreamliner-þotur í hverjum mánuði, bæði í Everett og í North Charleston í Suður-Karólínu.

Fyrir 10 árum síðan voru að vísu uppi hugmyndir hjá Boeing að framleiða Dreaminer-þotuna á enn meiri hraða en árið 2007 var því spáð að smíðuð yrðu 16 eintök á mánuði og það bara á einum stað í Evrerett.

Þeim mun fleiri Dreamliner-þotur sem eru framleiddar í mánuði þeim mun meira minnkar álagið á Boeing að koma út á sléttu með framleiðsluna og tíminn í að Dreamliner-þotan fer að borga sig upp, styttist.

Muilenburg segir að eftirspurnin sé að aukast í Dreamliner en Boeing fékk aðeins pantanir í 42 eintök árið 2014 en árið 2015 komu pantanir í 99 þotur, 80 til viðbótar í fyrra og það sem af er árinu 2017 þá hefur Boeing fengið pantanir í 82 þotur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga